krila

Thursday, February 28, 2008

Svipmyndir af barninu mínu..la la la

Múshildur hjálpar?

Í bakveikindum mínum hefur ástkær verið ötul í að hjálpa móður sinni, eitt af uppáhaldsverkunum hennar sést hér þarsem hún er með vaskinn í froðubaði.


Afi í æfingum

hún dóttir mín þreytist seint á því að láta hann afa sinn bæði elta sig um stofuna og keyra sig um í stólnum, henni til mikillar kátínu...föður mínum reyndar til mikilla ama enda er karlinn að nálgast sextugt og eltingaleikur og stólaleikur ekki besta hreyfingin fyrir aldraðan golfara. En þegar svona mikill ormur hleypur á eftir honum og gargar AFI AFI þá er erfitt að muna hvað maður er gamall....

1 Comments:

  • At 10:44 AM, Blogger húsmóðirin said…

    Það er mjög mikilvægt að vera með hreinan vask, það er henni fyrir bestu að læra það strax ;)
    kv, Þura

     

Post a Comment

<< Home